Jæja það er kominn þriðjudagskvöld.
Guð minn eini, dagarnir þjóta áfram og fyrr en varir
þá verða jólin komin.
Börnin voru hjá pabba sínum um síðustu helgi. Þau komu
reyndar heim á laugardagskvöldið og voru heima eina nótt þar sem
pabbinn þurfti að fara í kleinubakstur snemma á sunnudagsmorgni.
Sem hann svaf yfir sig í By The Way!
Föstudagskvöldið var mjög notalegt. Horft á X-factor
og haf það virkilega gott. Hafdís mín bauð mér svo með sér í dekur
í Baðstofunni Laugum. O M G það var hreinn unaður. Maður var
endurnærður eftir það. Var svo heima með börnin í brjáluðu veðri um
kvöldið. Fór svo með afa í smáralindina á sunnudeginum. Guð minn...
Það mætti halda að ég hefði verið með síðasta hlutinn í allri
lindinni. Stressið algjörlega að ná tökum á fólkinu. Fór í
bíó með Sigga um kvöldið og sáum við The Hollyday. Yndisleg mynd.
Mæli sterklega með henni.
Það sem af er viku er búið að vera hálf geðveikt. En
maður sér náttla fyrir endann á því eins og öðru sressverkandi.
Vöðvabólgan að gera útaf við mig.Hnútar á hálsinum og leiðindi.
Mín var orðin frekar slöpp í morgun, en þraukaði
daginn. Er búin að dorma í sófanum síðan ég kom heim. Enn soldið
slöpp. En það er náttla ekkert hægt að fara að vera veikur núna,
gengur ekkert.
Á morgun byrja hátíðarhöldin í
vinnunni. Föst viðvera á skrifstofunni milli 1 og 5 á morgun og
hinn daginn. Við bjóðum starfsfólki okkar og tenglum í jólakaffi.
Starfsfólkið fær jólagjafirnar sínar og boðið verður uppá
veitingar.
Svo er jólaball ISS á laugardaginn og ætla ég að
skella mér með börnin á það.
Nú þá erum við að tala um að einungis 7 dagar eru til
jóla. Á 2 gjafir eftir. Jólatréð fer bráðum að skjótast upp á
þessum bæ.
Reyndar er mín svo að fara í svakalegt dekur á
þriðjudaginn. Já minni er boðið út að borða, á jólatónleika
Borgardætra og svo er stefnan tekin á frídag miðvikudaginn 20.Des
og bláa lónið verður góður staður til að eyða fríinu á.
Jiii minn einastasti.... Ég er að gleyma aðal
atriðinu... Míns fékk útúr loka ritgerð í sálfræðinni
9,0Jebbs... Dugleg stelpan. Held að það verði úr að ég haldi
áfram eftir áramótin.. svona allavega finnst ég fékk svona fína
einkunn..
Jæja.. ég segi bara hafði það gott. Míns er farin að
sofa snemma í kvöld.
Loves.. Dísin.
Ps. Mér þætti mjög vænt um ef þið sem kíkið og lesið
gætuð kvittað fyrir komu ykkar. 